© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.6.2011 | 14:38 | Kristinn
Sumardeildin · skráning stendur yfir
KKÍ efnir annað árið í röð til mótaraðar í götukörfubolta með klassísku 3-á-3 sniði þar sem liðin skiptast á að spila sókn eftir skoraða körfu.

Mótið fer þannig fram að KKÍ raðar upp riðlum með þeim liðum sem skrá sig til leiks og síðan munu liðin sjálf ákveða leikdaga og sjá til þess að þau klári að leika sína leiki fyrir mótslok. Mótstími verður ljós þegar búið er að taka við skráningum og raða í riðla en gera má ráð fyrir því að leikir þurfi að fara fram milli helgina fyrir menningarnótt í lok ágúst. Í hverju liði er fyrirliði sem sér um að ákveða í samráði við fyrirliða mótherjanna hvenær leikir fara fram.

Þá er stefnt að því að hafa veglega úrslitakeppni með þeim liðum sem komast áfram úr riðlunum sínum um miðjan ágúst með skemmtilegri umgjörð.

Helstu reglur eru þær að mótið er opið öllum sem vilja taka þátt og eru 18 ára eða eldri, óháð því hvort um ræðir áhugamenn um körfubolta eða leikmenn úr deildum KKÍ. Hámark sjö leikmenn mega vera saman í liði og þátttökugjald á hvert lið er 3.500 kr. (500 kr. á mann)

Nánari upplýsingar, eins og leikreglur, framkvæmd móts og leikja og fleira er að finna á www.kki.is/sumardeildin.asp og hægt er að senda spurningar og þátttökutilkynningar inn á netfangið sumardeildin@kki.is.

Frestur til skrá sig til leiks er til og með sunnudagsins 12. júní.

Úrslit og staða mun svo birtast á mótavef KKÍ.




Sjá nánari reglur hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jakob Örn Sigurðsson og Baldur Ólafsson fagna hér ásamt liðsfélögum sínum í KR eftir að hafa unnið Poweradebikarinn 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið