© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.6.2011 | 11:23 | Stefán | Yngri landslið
Sterkt sænskt lið var betra í dag
Þorsteinn Ragnarsson setti sjö stig fyrir Ísland
Strákarnir í U18 máttu þola tap fyrir Svíum 65-93 í leik þar sem sænska liðið var töluvert betra að öllu leyti.

Strákarnir byrjuðu ágætlega en þegar leið á leikinn tóku Svíarnir frumkvæðið og við vorum að elta. Það munaði aðeins sex stigum í hálfleik 39-33. Í þeim seinni tóku Sviarnir öll völd á vellinum og keyrðu upp muninn. Sóknaraðgerðir okkar voru ekki nógu markvissar en við sættum okkur við alltof mikið af löngum skotum í stað þessa að keyra meira á körfuna.

Stigahæstur hjá Íslandi var Matthías Sigurðarson með 20 stig en hann var valinn maður úrslitaleiksins.

Umfjöllun um leikinn á Karfan.is

Myndbandsviðtal við Einar Árna Jóhannsson, þjálfara U18 Karfan.is

Leikurinn í tölum:
Flest stig: Mattías Sigurðarson - 20
Flest fráköst: Kristófer Acox - 7
Flestar stoðsendingar: Valur Orri Valsson - 5
Flestir stolnir boltar: Kristófer Acox - 2
Flest varin skot: Kristófer Acox - 1
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið