© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.3.2002 | 22:24 | óój
Valsmenn Íslandsmeistarar í 1. deild
Valsmenn tryggðu sér 1. Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla í kvöld með 92-88 sigri á Snæfelli í hörkuskemmtilegum og hnífjöfnum úrslitaleik á Hlíðarenda en bæði liðin voru búin að tryggja sig upp í úrvalsdeildina á næsta ári.

Snæfellingar byrjuðu betur og höfðu yfir 20-22 eftir fyrsta leikhluta og 42-47 í hálfleik en Valsmenn unnu þriðja leikhlutann 26-17 og náðu þar með undirtökunum. Leikurinn var samt æsispennandi allt til enda og margir leikmenn voru að ná glæsilegum árangri í tölfræðinni eins og sjá má hér á eftir.

Valsmaðurinn Hjörtur Þór Hjartarson náði glæsilegri þrennu í leiknum en hann var með 15 stig, 14 fráköst og 11 varin skot en Hjörtur varði meðal annars 7 skot Snæfellinga í fyrri hálfleik. Ómar Sigmarsson átti einnig mjög góðan leik en hann var með 24 stig, 6 stoðsendingar og sex þriggja stiga körfur á aðeins 25 mínútum þar af gerði Ómar 13 af stigum sínum í lokaleikhluta leiksins. Bergur Emilsson, spilandi þjálfari Valsmanna, var með 9 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst en Ragnar Steinsson, sem skoraði 23 stig í leiknum, hitti illa og setti aðeins 6 af 26 skotum sínum niður í leiknum en tíu stiga hans komu á vítalínunni. Ólafur Jóhannesson, fyrirliði Vals-liðsins, var einnig traustur með 16 fráköst og 5 stoðsendingar.

Hjá Snæfelli voru þeir Helgi Guðmundsson (24 stig, 12 stoðsendingar og 8 fráköst) og Orlando Donaldsson allt í öllu en Orlando tók 24 fráköst, skoraði 25 stig, varði 5 skot og gaf 4 stoðsendingar í leiknum. Atli Rúnar Sigurþórsson átti líka frábæran kafla í fjórða leikhluta þegar að hann gerði 11 stig þar á meðal var bortið á honum í þriggja stiga skoti og setti Atli bæði þriggja stiga skotið og vítið niður en alls gerði hann 13 stig í leiknum. Þá lék Ólafur Guðmundsson, yngri bróðir Helga, vel og gerði 13 stig og tók 7 fráköst.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Arnþór Guðmundsson og Ægir Steinþórsson, fyrirliðar Fjölnis í 11. fl. kk., lyfta hér bikarnum eftir að hafa lagt Hauka að velli 80-53 í úrslitaleik Íslandsmótsins. Var þetta fjórða árið í röð sem Fjölnir vinnur í þessum árgangi(´91) og ávallt var það lið Hauka sem lenti í öðru sæti.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið