© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.5.2011 | 9:17 | Kristinn | Yngri flokkar
Fyrri helgi úrvalsbúða KKÍ aðra helgi
KKÍ mun standa fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshópa KKÍ eins og gert hefur verið síðastliðin sumur með mjög góðum árangri.

Úrvalshóparnir eru undanfari yngri landsliða Íslands þar sem unglinga landsliðsþjálfarar ásamt gestaþjálfurum stjórna æfingum og fara yfir helstu tækniatriði.

Í sumar stendur KKÍ fyrir æfingabúðum fyrir drengi og stúlkur sem fædd eru á árunum 1998, 1999, og 2000 og hafa þjálfarar liða í þessum aldursflokki tilnefnt leikmenn í búðirnar til KKÍ og þeir verið boðaðir með bréfi.

Æfingabúðirnar standa yfir tvær helgar í sumar en fyrri helgi æfingabúðanna verður aðra helgi, dagana 28.-29. maí.

· Stúlkur æfa í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda
· Drengir æfa í DHL-höllinni í Frostaskjóli


Dagskráin eftirfarandi fyrir báða dagana:
Krakkar ´00 · kl. 09.00 – 11.00
Krakkar ´99 · kl. 11.30 – 13.30
Krakkar ´98 · kl. 14.30 – 16.30

Verð fyrir hvern þátttakanda í úrvalsbúðirnar er 6.000 kr. samtals fyrir báðar helgarnar og greiðist á staðnum. Hægt verður að greiða með korti.

Seinni helgin verður síðan haldin 20.-21. ágúst.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá keppni drengjalandsliðs Íslands í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Tyrklandi árið 1993.  Snyrtipinnarnir Arnþór Birgisson og Bergur Emilsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið