© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.5.2011 | 18:30 | Kristinn | Fundir, KKÍ
3+2 féll á jöfnu – breyting í Iceland Express-deild kvenna


Rétt í þessu var 49. körfuknattleiksþinginu að ljúka en það var haldið á Sauðárkróki.

Ný stjórn var kosin og kemur Rúnar Birgir Gíslason nýr inn í stjórn. Aðrir sem voru kosin hafa setið þar áður en þau eru Guðbjörg Norðfjörð, Erlingur Hannesson, Eyjólfur Þór Guðlaugsson, Páll Kolbeinsson og Lárus Ingi Friðfinnsson. Í varastjórn voru Bryndís Gunnlaugsdóttir, Guðjón Guðmundsson og Guðjón Þorsteinsson kosin. Jóhann Waage og Birgir Már Bragason náðu ekki kjöri. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var endurkjörin en hann var einn í framboði.

Fyrir þinginu voru margar spennandi og ítarlegar tillögur og meðal þeirra breytinga sem voru gerðar var að í Iceland Express-deild kvenna verður leikin fjórföld umferð í einni deild á næsta tímabili. Það þýðir að A og B skiptingu deildarinnar verður ekki haldið áfram og verða því 28 leikir á næsta tímabili í efstu deild kvenna miðað við 20 leiki síðasta vetur. Fjögur efstu lið fara í úrslitakeppni.

Fyrir þinginu lá tillaga þess efnis að takmarka fjölda útlendinga í deildarkeppni meistaraflokka karla og kvenna. Miklar umræður voru um kosti og galla þess að takmarka þann fjölda útlendinga sem er inná vellinum hverju sinni. Kosið var um tillöguna sem hefur verið nefnd 3+2 en hún snérist um það að hverju sinni mátti þjálfari ekki hafa fleiri en tvo útlendinga inná hverju sinni. Óskað var eftir skriflegri atkvæðagreiðslu um málið sem er sjaldgæft því venjulega er kosið með handauppréttingu. Skrifleg atkvæðagreiðsla er leynileg og að lokinni talningu atkvæða var ljóst að skoðanaskipti þingfulltrúa var töluverð en atkvæðin féllu jöfn 43-43 og þrír seðlar voru auðir. Var tillagan því felld vegna þess að hún fékk ekki meirihluta atkvæða.

Í kjölfarið á þessu var greitt atkvæði um tillögu þess efnis að leyfa tvo erlenda leikmenn í hverju liði. Það þýðir að lið mega ráða til sín tvo bandaríska leikmenn og tefla þeim fram í sama leik, en áður var það óheimilt og aðeins mátti hafa einn bandarískan leikmann í liðinu. Var þessi tillaga samþykkt með góðum meirihluta atkvæða.

Gerðar voru breytingar á Lengjubikar karla og kvenna og verða bæði mót með breyttu sniði næsta vetur. Í Lengjubikar karla verður keppnin með 16 liðum, öllum liðum efstu deildar ásamt fjórum liðum úr 1. deild. Verður liðunum skipt í styrkleikaflokka, fjögur lið í hverjum styrkleikaflokki. Dregið verður í riðla og leikið fyrir áramót með úrslitum hinna fjögurra fræknu. Leikirnir verða eftir að Íslandsmótið hefst. Í

Lengjubikar kvenna verður keppni 10 liða. Öll liðin úr Iceland Express-deild ásamt tveimur úr 1. deild kvenna. Leikið verður í tveimur riðlum, fimm lið í hvorum riðli og verður ein umferð leikin þar sem allir spila við alla. Lengjubikar kvenna klárast áður en Íslandsmótið hefst.

Óbreytt keppnisfyrirkomulag verður í Iceland Express-deild karla og ekki verður fjölgað liðum í 1. deild karla.

Tillaga þess efnis að fella niður reglugerð um sameiginleg lið fékk ekki brautargengi og því stendur hún.

Tillaga þess efnis að taka upp 3-dómara kerfi í Iceland Express-deild karla var felld.

Nánast verður sagt frá þinginu eftir helgi.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hörður Axel Vilhjálmsson neglir hér yfir leikmann danska liðsins á Norðurlandamótinu 2004 í Svíþjóð.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið