© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.5.2011 | 10:01 | Kristinn | KKÍ, Landslið
Nýr þjálfari hjá A-landsliði karla í körfuknattleik

Mynd: SofieWiklund, Dagbladet

KKÍ hefur ráðið þjálfara á A-landslið karla til ársins 2013.

Næsti þjálfari A-landsliðs karla verður Peter Öqvist sem í dag er þjálfari Sundsvall í Svíþjóð.

Um Peter Öqvist:
Peter er 35 ára og hefur bæði menntun og mikla reynslu sem þjálfari en hann hóf mjög ungur að þjálfa.

Peter var í þjálfarateymi yngri landsliða og U-20 ára landsliðs Svía á árunum 2002 - 2006

Peter hefur verið aðalþjálfari Sundsvall síðustu 6 ár og þar á undan var hann aðstoðarþjálfari liðsins í tvö tímabil.

Á þessum árum hefur Sundsvall verið í fremstu röð og m.a. unnið nokkra deildarmeistaratitla, meistaratitilinn 2009 og í nokkur skipti leikið til úrslita. Þegar þetta er ritað er liðið í harðri baráttu um sænska meistaratitilinn.

Peter þekkir ágætlega til körfuboltans á Íslandi en með Sundsvall leika þeir Jakob Sigurðarson og Hlynur Bæringsson en auk þeirra leika Logi Gunnarsson og Helgi Magnússon í Svíþjóð. Einnig hefur Peter fylgst með yngri sem eldri landsliðum Íslands síðustu árin.

Aðstoðarmenn Peters:
Peter til aðstoðar verða þeir Helgi Jónas Guðfinsson fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður og núverandi þjálfari Grindavíkur og Pétur Sigurðsson fyrrverandi leikmaður í efstu deild og nýráðinn þjálfari KFÍ.

Helgi Jónas kemur með víðtæka þekkingu sem fyrrverandi landsliðsmaður, atvinnumaður og þjálfari úr efstu deild. Einnig mun þekking og reynsla Helga á styrktar og hraðaþjálfun nýtast leikmönnum og liðinu.

Pétur Sigðurðsson sem útskrifast sem íþróttafræðingur á næstunni hefur þjálfað yngri flokka og meistaraflokka og er nýráðinn þjálfari KFÍ á Ísafirði. Pétur mun m.a. sjá um úrvinnslu myndbanda af leikjum og greiningu á andstæðingum íslenska liðsins.

Norðurlandamót í Sundsvall í sumar:
Norðurlandamót A-landsliða fer fram í Sundsvall heimavelli Peter, Jakobs og Hlyns dagana 23.–28. júlí

Evrópukeppni 2012 – 2013:
Liðið mun svo einnig taka þátt í nýju fyrirkomulagi á Evrópukeppninni sem hefst 2012 en þá verður ekki leikið i A og B deild eins og undanfarin ár. Þau lið sem ekki fara sjálfkrafa í lokakeppnina í Slóveníu 2013 verður raðað í styrkleikaröð í riðla sem er svipað og gert er í knattspyrnunni. Það eru því vonir til þess að sterkar þjóðir komi til landsins á næstu árum. Það verður dregið í riðla í kringum næstu áramót.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Páll Kristinsson, leikmaður UMFG, og Sigmundur Már Herbertsson, FIBA-dómari, ræða saman í bikarúrslitaleik karla 18. febrúar 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið