© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
29.4.2011 | 9:00 | Kristinn | KKÍ
Þingtillögur fyrir Körfuknattleiksþingið 2011
Hér fyrir neðan er hægt að nálgast þingtillögur félaganna og stjórnar KKÍ sem fjallað verður um á Körfuknattleiksþinginu á Sauðárkróki dagana 6.-7. maí næstkomandi.

Þingtillögur fyrir Körfuknattleiksþingið 2011 er hægt að nálgasthérna.

Dagskrá þingsins:

Föstudagur 6. maí kl. 17:00

1. Þingsetning.
2. Kosning starfsmanna:
a) Kosning kjörbréfanefndar. b) Kosning fyrsta og annars þingforseta. c) Kosning fyrsta og annars þingritara.
3. Kosning fastra nefnda:
a) Fjárhagsnefndb) Laga- og leikreglnanefnd.c) Allsherjarnefnd.
Nefndir þessar eru skipaðar þremur mönnum hver og kjósa þær sér formann.
4. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar.
6. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlanir fyrir næsta ár.
7. Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar þær, sem borist hafa til stjórnarinnar.
8. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál, sem borist hafa til stjórnarinnar.

Kynning á frambjóðendum til stjórnar KKÍ verður fyrir þinghlé

19:45 Þinghlé og þingnefndir taka til starfa

Laugardagur 7. maí kl. 10:00

9. Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðslur um þær.
10. Önnur mál.
11. Kosning formanns.
12. Kosning sex meðstjórnenda og þriggja manna varastjórn.
13. Kosning sex manna í aga og úrskurðarnefnd KKÍ.
14. Kosning þriggja manna í Áfrýjunardómstól KKÍ og þriggja til vara.
15. Kosning tveggja endurskoðenda.
16. Kosning fulltrúa á Íþróttaþing.
17. Þingforseta og þingritara falið að ganga frá þinggerð.
18. Þingslit

Áætluð þingslit eru um kl. 15:00

Upplýsingar fyrir þá sem munu taka þátt í þinginu er að finna hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
UMFN og KR mættust í Bikarúrslitaleiknum í 10. flokki karla 2008 á Bikarúrslitahelginni sem haldin var í Keflavík. UMFN vann 77-53 og var Valur Orri Valsson sem er hér til vinstri valin maður leiksins. Með honum að taka við bikarnum er Oddur Birnir Pétursson en þeir eru fyrirliðar Njarðvíkur. Feður þeirra beggja, Valur og Pétur, léku lengi með Njarðvík á sínum yngri árum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið