© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.4.2011 | 20:40 | Kristinn | NCAA háskólaboltinn
4-liða úrslit NCAA í kvöld
Í kvöld er komið að undanúrslitum í bandaríska háskólakörfuboltanum. Í fyrri leik kvöldsins, sem hefst kl. 22:09 að íslenskum tíma, mætast spútnik liðin tvö VCU og Butler.

VCU hefur komið einna mest á óvart í keppninni í ár en að sama skapi gerði Butler það i fyrrra og hefur farið lengra í ár en margir reiknuðu með.

Þess má geta að skráðir nemendur í skólunum eru 4.200 í Butler en 32.000 í VCU. VCU er í fyrsta sinn í sögu skólans í undanúrsitum en Butler eru í annað sinn, í fyrsta sinn í fyrra.

Klukkan 00.49 mætast svo Connecticut og Kentucky í seinni leik kvöldsins. Skólarnir eru svipaðir að stærð með um 27.000 nemendur. UConn hefur fjórum sinnum verið í undanúrslitum áður og unnið tvo titla á meðan Kentucky hefur fjórtán sinnum farið í undanúrslit og unnið sjö titla.

ESPN stóð fyrir leik að venju og tóku 6 milljónir manna þátt í að fylla út "Bracket" og spá fyrir um hvaða lið færu alla leið. Enginn var með alla 32 leikina rétta eftir fyrstu umferðina. Í dag eru 1,093 manns með 3 lið af fjórum rétt og aðeins tveir með öll fjögur liðin rétt í úrslitum sem skýrist að hluta til af því að liðin sem eru komin í úrslit eru númer 3, 4, 8 og 11 í styrkleikaröðuninni sem er frekar óvenjulegt.

Sigurvegararnir mætast svo mánudaginn 4. apríl.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Það má segja að hlutföllin séu kolvitlaus á þessari mynd, því yfirleitt er dómarinn nokkuð lægri en leikmennirnir sem fara í dómarakast í upphafi leiks.  Hinn 214 cm hái Egill Jónasson, býr sig undir að taka dómarakast á Samkaupsmóti 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið