© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.3.2011 | 9:00 | Kristinn | KKÍ
Golfmót Körfuboltamanna 2011
Ríkharður Hrafnkelsson hefur að venju hafið undirbúning fyrir komandi mót og er staðsetning orðin ljós á mótinu í ár.

Hið árlega golfmót körfuboltamanna fer fram fimmtudaginn 16. júní í Vestmannaeyjum og verður ræst út af öllum teigum samtímis. Nánari tímasetning innan dagsins verður tilkynnt þegar nær dregur, en tíminn verður miðaður við siglingar Herjólfs frá Landeyjarhöfn.

Þetta verður í fjórtánda sinn sem mótið fer fram, en mótið var fyrst haldið í Hólminum árið 1998. Mótið var einmitt haldið í Hólminum í fyrra og þar á undan í tvö ár á Flúðum. Golfvöllurinn í Eyjum er gríðarlega fallegur og skemmtilegur og upplifun að leika þar.

Á mótið eiga erindi allir þeir sem einhvern tíman hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Makar eru að sjálfsögðu einnig velkomnir. Vel hefur verið mætt á mótin undanfarin ári og þau tekist frábærlega.

Leiknar verða 18 holu punktakeppnir, bæði með og án forgjafar, þar sem hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Skráning og nánari upplýsingar er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni í síma 660-3170 eða á tölvupóstfangi: rikkihr@visir.is
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið Íslands sem tók þátt í Evrópukeppninni í Antalya í Tyrklandi árið 1976. Frá vinstri: Steinn Sveinsson, fararstjóri, Örn Þórisson, Fram, Birgir Thorlacius, Fram, Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, Ómar Þráinsson, Fram, Þórir Einarsson, Fram, Pétur Guðmundsson, Val, Þorvaldur Geirsson, Fram, Óskar Baldursson, Breiðabliki, Erlendur Markússon, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson, Val, Sigurjón Ingvarsson, Fram og Gunnar Gunnarsson, þjálfari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið