© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.3.2002 | 10:09 | bl
Úrslitakeppnin hefst í kvöld
Úrslitakeppni Epson-deildarinnar hefst í kvöld þegar Íslandsmeistarar Njarðvíkur taka á móti nýliðum Breiðabliks í Ljónagrifjunni í Njarðvík, KR mætir Hamri og Tindastóll tekur á móti Grindavík. Leikirnir hefjast kl. 20:00. Deildarmeistarar Keflavíkur fá síðan Hauka í heimsókn kl. 19:00 annað kvöld.

En það eru fleiri úrslitakeppnir á dagskrá heldur en í Epson-deildinni. Á morgun hefst úrslitakeppnin í 1. deild karla og í 1. deild kvenna byrjar fjörið á þriðjudaginn kemur.

Þá eru einnig framundan úrslitakeppnir í 2. deild karla. Baráttan um tvö laus sæti í 1. deild verður háð í Grafarvogi 22.-24. mars og úrslitakeppni B-liða (unglingaflokks) er á næstu grösum. Átta-liða úrslit þeirrar keppni verða leikin 21.-24. mars. nk. Þá er ógetið úrslitakeppni C-liða í 2. deild en þar eru ekki komnar dagsetningar á leikina.

Hér til hægri getur þú skoðað dagskrá og úrslit leikja í úrslitakeppnunum. Þú smellir á þá deild sem þú vilt skoða.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jason Dourisseau, leikmaður KR, var án efa maður dagsins á Stjörnudegi KKÍ, laugardaginn 13. desember, sem fram fór á Ásvöllum.

Jason sem lék með úrvalsliði Iceland Express og fór á kostum og var valinn besti maður leiksins, en þar skoraði hann 36 stig og tók 10 fráköst. Hann fór einnig á kostum í troðslukeppninni og sýndi glæsileg tilþrif í háloftunum en það fór svo að hann keppnina. Hér er hann með verðlaun sín eftir daginn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið