© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.2.2011 | 10:30 | Kristinn | Mótahald
Nettómótið 2011
Barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur í samvinnu við Nettó og Reykjanesbæ standa fyrir sínu árlega körfuboltamóti í Reykjanesbæ helgina 5. og 6. mars 2011.

Þetta er jafnframt 21. mót félaganna. Mótið er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta fædd árið 1999 og síðar.

Leikið verður á 13 völlum, 2 x 12 mínútur hver leikur.

Innifalið í mótsgjaldi:
• Bíóferð
- Fyrir krakka 8 til 11 ára verður myndin Yogi Bear sem er ný gamanmynd.
- Fyrir krakka 6 og 7 ára verður myndin Space Chimps 2 sem er ný teiknimynd og hæfir vel þeim aldurshópi.
• Frítt verður í Vatnaveröld ‐ Sundmiðstöð
• Hádegismatur á laugardag
• Kvöldmatur á laugardag
• Kvöldvaka og glaðningur
• Kvöldhressing á laugardagskvöld
• Gisting
• Morgunmatur á sunnudag
• Hádegismatur á sunnudag – Pizzuveisla frá Langbest
• Verðlaunapeningur
• Gjöf í mótslok
• Reykjaneshöllin verður opin alla helgina en þar verður boðið uppá margskonar afþreyingu til dæmis hoppukastala, körfubolta, fótbolta, frisbee-gólf og margt fleira. Um er að ræða 7.840m² leiksvæði.
• Innileikjagarðurinn Ásbrú verður opinn á laugardag frá kl. 14.30‐17.30 en það er leiksvæði sem hentar sérstaklega vel fyrir yngstu kynslóðina, 2‐8 ára.

Mótsgjald:
• Félagsgjald kr. 10.000.‐
• Gjald per. þátttakanda er kr. 5.000.‐
• Frítt er fyrir 1 þjálfara og 1 aðstoðarmann á hvert lið
28 síðna bæklingur mótsins verður sendur félögum fyrir mótið. Í honum eru allar upplýsingar um mótið. Einnig er hægt að nálgast bæklinginn á heimasíðu mótsins; www.nettomot.blog.is undirliðnum Tenglar, sem er vinstra megin á þeirri síðu.

Skráning:
Falur J. Harðarson
Netfang: nettomot@gmail.com.
Sími: 896-4468

Athugið að síðasti skráningardagur er 25. febrúar, kl. 20:00.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Sarajevo í Bosníu v/þáttöku í undanúrslitakeppni Evrópumótsins árið 1998.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið