S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
18.1.2011 | 12:50 | Kristinn | Yngri landslið
U20 landsliðið: Riðlar á EM
Alls taka 112 karla lið og 91 kvenna lið þátt í sumar í A og B deildum yngri landsliða á komandi Evrópumóti. Það voru þeir Ólafur Rafnsson, forseti, og Nar Zanolin framkvæmdastjóri FIBA Europe sem sáu um að stjórna drættinum. Ísland leikur í D-riðli og drógumst við með heimamönnum í riðil. Leikið verður í Sarajevo, Bosníu dagana 14. til 24. júlí og má fastlega búast við gríðarlegri stemmningu á leikjum heimamanna enda Bosnía stórþjóð í körfuboltanum og því spennandi mót framundan hjá U20. Mótherjar Íslands í sumar verða auk heimamanna: D-riðill Ísrael Hvíta Rússland Ísland Belgía Bosnía Aðrir riðlar í B-deildinni í Sarajevo: A-riðill Póland Rúmenía Georgía Eistland Sviss Makedónía B-riðill Búlgaría Slóvakía Danmörk Holland Ungverjaland C-riðill Tékkland Portúgal Noregur Bretland Finnland Lúxemborg Eftir riðlakeppni er leikið í þremur milliriðlum þar sem lið 1-9 í milliriðil 1 eiga kost á að leika til úrslita og vinna sér sæti í A-deild að ári. |