
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
1  | 
	||||||
2  | 
		3  | 
		4  | 
		5  | 
		6  | 
		7  | 
		8  | 
	
9  | 
		10  | 
		11  | 
		12  | 
		13  | 
		14  | 
		15  | 
	
16  | 
		17  | 
		18  | 
		19  | 
		20  | 
		21  | 
		22  | 
	
23  | 
		24  | 
		25  | 
		26  | 
		27  | 
		28  | 
		29  | 
	
30  | 
		
| 
 9.12.2010 | 16:50 | FÍR 
  Steindi JR er leynivopn Celeb liðsins gegn landsliðinu 
   
    ![]() Eins og margir muna þá mættust lið skipað eldri landsliðsmönnum og lið þekktra einstaklinga úr þjóðlífinu á síðasta ári þar sem landsliðið bar sigur úr býtum 39:27 Egill Gillz Einarsson og Sverrir Bergmann hafa skorað á landsliðið á ný og verður leikurinn í Seljaskóla í tengslum við Stjörnuleikshátíðina nk. laugardag. Áætlað er að leikurinn hefjist klukkan 14:40. Lið þeirra félaga er skipað eftirtöldum leikmönnum: Egill Einarsson - Gillz Sverrir Bergmann - Geim Tíví og Íslandsmeistari í 8.flokk Ólafur Jóelsson - Geim Tíví Logi Bergmann - Í beinni Auðunn Blöndal - aka Auddi og líka Íslandsmeistari í 8.flokk Hjörvar Hafliðason kemur nýr inn í liðið eftir HM fótboltafræði síðasta sumars Steindi JR. kemur einnig nýr inn í liðið sem Geðveikt fínn gaur Guðmundur Benediktsson - Alinn upp af Ívari Webster á Akureyri Jogvan Hansen - Gullbarkinn frá Færeyjum Miklar vonir eru bundnar við þá Hjörvar og Steinda enda eru engar upplýsingar til á skrá um leikstíl þeirra félaga og verður því erfitt fyrir landsliðsmennina að stöðva þá. Það er jafnvel von á að fleiri leikmenn bætist við en þessa dagana standa yfir æfingabúðir hjá liðinu. Lið eldri landsliðsmanna verður skipað eftirtöldum leikmönnum: Jón KR Gíslason Teitur Örlygsson Guðmundur Bragason Sigurður Ingimundarson Guðjón Skúlason Henning Henningsson Páll Kolbeinsson Birgir Mikaelsson Herbert Arnarson Guðni Guðnason Torfi Magnússon sem þjálfaði landsliðið á sínum tíma verður á bekknum og stjórnar með harðri hendi. Jafnvel von á að fleiri bætist í liðið  |