© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.11.2010 | 14:52 | Stefán
Vetur konungur hefur áhrif á mótahald
Hinn íslenski vetur minnir á sig en nokkur lið komust ekki til keppni.
Í dag þurfti að fresta fjölliðamóti á Ísafirði. C-riðill í Stúlknaflokki átti að fara fram þar um helgina en ÍA og Tindastóll komust ekki leiðar sinna en bæði lið áætluðu að keyra í morgun.

Ekki var unnt að leggja í hann enda skilyrði til aksturs á vestfjörðum ekki þau bestu í morgun. En vegir eru ekki ruddir á laugardögum á vestfjörðum og því var ljóst að miðað við þá ofankomu sem féll í nótt og í morgun að mótinu þurfti að fresta.

Mótið verður sett á næstu helgi.

Einnig komst lið Þórs frá Akureyri ekki til Njarðvíkur en þeir áttu leik upp úr hádegi í A-riðli í 11. flokki. Mikið hefur snjóað á Akureyri undanfarið og í nótt var mikil snjókoma eins og má lesa á Mbl.is og íbúar áttu erfitt með að ferðast innanbæjar.

Fresta þurfti einum leik í B-riðli í 8. flokki drengja en lið Tindastóls gat ekki lagt af stað eins snemma í morgun og þurfti til vegna veðurs. Var því einum leik hjá Sauðkrækingum frestað til morguns en þeir eru núna á leiðinni í bæinn en B-riðill er í Seljaskóla.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ársþingi KKÍ á Flúðum árið 1994.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið