© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.11.2010 | 15:06 | Kristinn | FIBA
Nýjar merkingar á körfuboltavelli ásamt breytingum á skotklukku
Alþjóða Körfuknattleikssambandið – FIBA World ákvað fyrir nokkru að breyta merkingum á körfuknattleiksvöllum sem er meðal annars liður í því að leikurinn verði alls staðar eins.

Einnig munu verða breytingar á reglum um skotklukku.

Keppt verður eftir þessum nýju merkingum og breytingu á skotklukku í ýmsum löndum Evrópu í vetur en FIBA Europe setti það sem skilyrði fyrir þau lið sem taka þátt í Evrópukeppnum félagsliða að leikið yrði við þessar nýju aðstæður frá hausti 2010.

KKÍ ákvað eins og ýmsar aðrar þjóðir að taka þessar nýju reglur í gildi frá og með keppnistímabilinu 2011-2012. Með því gefst sveitarfélögum og félögum meiri tími í að gera viðeigandi ráðstafanir.

Þessar breytingar hafa verið tilkynntar viðeigandi aðilum eins og félögunum, sveitarfélögunum og rekstraraðilum íþróttahúsa.

Nú þegar hafa mörg hús sem voru með á dagskránni að laga eða endurnýja gólf, sett upp nýju línurnar og meðal þeirra eru KFÍ og ÍR, en hægt er að sjá frétt um nýtt parket á Seljaskóla hérna

Núverandi leiklínur hafa því verið settar með til bráðabirgða út þetta tímabil.

Í stuttu máli færist þriggja stiga línan utar og teigurinn verður kassalaga með ruðningsfríu svæði undir körfunni.

Breytingar á merkingum og skotklukku innihalda eftirfarandi:
• Þriggja stiga línan færist frá 6.25m í 6.75m
• Breytt lögun á svæðinu (takmarkaða svæðinu) innan vítateigs. Það verður ferhyrnt í stað trapisulaga.
• Ruðningsfrír hálfhringur sem kemur undir körfuna innan takmarkaða svæðisins.
• Innkastslína við hliðarlínu þar sem innköst verða tekin þegar lið kemur út úr leikhléi og minna en 2 mínútur eru eftir af leiknum. Í framlengingu eru innköst einnig tekin frá þessarri nýju línu eftir leikhlé. Staðsetning þessarar línu er í beinni línu út frá efsta boga þriggjastigalínunnar.
• Með breyttri reglu á skotklukku þarf að vera hægt að endursetja í 14 sek. og einnig í 24 sek. eins og er í dag. Ef 13 sekúndur eða minna eru eftir á skotklukkunni þegar leikur er stöðvaður við villu, fót eða aðrar aðstæður þar sem klukkan hefði verið endurstillt í 24 sek. og lið er á sóknarhelmingi skal endursetja skotklukkuna á 14 sekúndur.

Þessar breytingar verða svo kynntar nánar þegar nær dregur.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá stofnfundi Körfuboltaútgáfunnar ehf. sem gaf út tímaritið “Karfan” árið 1993.  Ólafur Johnson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Einar Bollason, Ólafur Rafnsson, Hannes Ágúst Guðmundsson, Haukur Hauksson, Sverrir Sverrisson og Björn Leósson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið