S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
||||||
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
11.9.2010 | 13:58 | Kristinn | FIBA
HM: Undanúrslitin í kvöld
![]() Fyrri viðureign dagsins er leikur Bandaríkjanna og Litháa kl. 16.00. Kl. 18.30 mætast svo Serbar og Tyrkir. Það má búast við að báðir þessir leikir verði spennandi og ekkert lið á víst sæti í undanúrslitin. Fyrirfram myndu margir veðja á Bandaríkin og Tyrki en Serbar slógu út Spánverja og hafa verið að vaxa og Litháar eru ennþá taplausir og slátruðu Argentínu þannig að allt getur gerst. Rússland lagði Slóveníu fyrr í dag í leik um sæti 7-8 og á morgun leika Spánverjar og Argentína um 5. sætið. Á morgun leika einnig liðin sem tapa í kvöld í undanúrslitunum um 3. sætið og annað kvöld lýkur keppninni með sjálfum úrslitaleiknum. |