S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
7.9.2010 | 21:27 | Kristinn | FIBA
HM: 8-liða úrslitin framundan
![]() Luis Scola, leikmaður Argentínu og Houston Rockets sá til þess að Argentína hafði sigur í lokin 93:89. Scola var hreint magnaður, lék í 39 mínútur af 40, hitti úr 13 af 19 skotum sínum inni í teig og setti niður eina þriggjastigaskotið sem hann tók. Að auki setti hann 8 af 9 vítum niður, tók 9 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Argentína mætir því Litháen í næstu umferð sem unni Kína í dag. Kínverska liðið náði að minnka niður 10 stiga forskot Litháa í 5 stig þegar skammt var eftir af leiknum en Litháen gaf í og sigraði sannfærandi 78:67. Það er því ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum en það eru engir smá leikir framundan og á mikið eftir að ganga á í keppninni áður en við fáum að vita hvaða þjóðir fara í undanúrslit. Þegar svona langt er komið í keppninni eru aðeins bestu liðin eftir í baráttunni um Heimsmeistaratitilinn. Á morgun, miðvikudaginn 8. september: kl. 15.00: Serbía · Spánn kl. 18.00: Slóvenía · Tyrkland Fimmtudagur 9. september: kl. 15.00: Bandaríkin - Rússland kl. 18.00: Litháen - Argentína Undanúrslitin fara svo fram laugardaginn 11. september en á föstudeginum mætast þau lið sem tapa í 8-liða úrslitunum og leika um sæti 5.-8. sæti. |