© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.8.2010 | 10:04 | Stefán | FIBA
Körfuboltakrakkar á leið til Tyrklands
F.v.: Högni, Örvar og Bríet
Í morgun lagði af stað hópur frá Íslandi áleiðis til Tyrklands. Það eru FIBA og tyrkneska körfuknattleikssambandið sem hafa efnt til æfingabúðanna fyrir efnilega krakka sem eru fædd á árinu 1996. Þessar æfingabúðir sem nefnast Children of the World eru í tengslum við HM í körfubolta sem hefst í endaðan ágúst.

Frá Íslandi fara þau Högni Fjalarsson úr KR og Bríet Hinriksdóttir úr Keflavík. Með þeim í för er Örvar Kristjánsson þjálfari en hann mun taka þátt í æfingabúðunum.

Þetta verkefni sem FIBA og tyrkneska sambandið hafa sett á laggirnar er afar metnaðarfullt en krakkar frá um 120 löndum mæta ásamt þjálfurum. Það er ljóst að þetta er einstakt tækifæri fyrir krakkana að fá að taka þátt í þessum æfingabúðum.

Ásamt því að æfa daglega við frábærar aðstæður fá krakkarnir tækifæri til að sjá nokkra leiki á heimsmeistaramótinu og fá þau m.a. að sjá bandaríska landsliðið spila.

Örvar Kristjánsson þjálfari ræddi við www.kki.is um þetta ævintýri sem þau eru að fara út í. ,,Þetta er auðvitað alveg einstakt tækifæri fyrir okkur öll að verða vitni að þessum gríðarlega merkilega viðburði sem HM er. Auk þess eru þessar æfingabúðir spennandi og þarna getur maður borið saman bækur sínar við þjálfara og leikmenn frá yfir 100 löndum sem er ótrúlega spennandi. Þetta verður einfaldlega bara gríðrlega mikið ævintýri fyrir okkur og mikill heiður að fara þarna fyrir hönd Íslands.”

Hægt er að lesa nánar um æfingabúðirnar með því að smella hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið kvenna U-18 sigraði með yfirburðum á Promotion cup FIBA Europe sem haldið var á Ásvöllum í Hafnarfirði í ágúst 2003. Stúlkurnar í þessu móti voru fæddar 1985 og síðar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið