© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.8.2010 | 18:01 | Stefán
Lituanica vann sumardeildina
Það var fagnað í dag - mynd: KGP
Úrslit sumardeildarinnar fóru fram í dag en leikið var á nýskýrðu Klambratúni. Það má segja að körfuboltaguðirnir hafa verið í góðu skapi í dag en frábært veður var á meðan úrslitin stóðu yfir. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína á Klambratúnið og horfðu á úrvals körfubolta og gæddu sér á íspinnum frá Kjörís.

Átta lið tóku þátt og var leikið með útsláttarkeppni. Í úrslitum mættust þau lið sem unnu sína riðla Celtics úr A-riðli og Lituanica úr B-riðli.

Í bráðskemmtilegum leik þar sem menn tóku fast en drengilega á fór svo að lokum að Lituanica vann 21-16 og fögnuðu liðsmenn og mikill fjöldi stuðningsmanna þeirra innilega.

Sumardeildin er nýtt mót á vegum KKÍ en það er götuboltamót sem er búið að vera í gangi í allt sumar sem náði hámarki í dag.

Að loknum átta liða úrslitum fór fram þriggja-stiga keppni. Hvert þeirra átta liða sem voru í úrslitum átti einn fulltrúa. Það var liðsmaður Lituanica sem fór með sigur úr býtum en það var Marek Avlas.


Sigurlið Lituanica

8-liða úrslit:
Lituanica-Þristurinn 21-8
Tornado-Leiknir 21-14
Celtics-Team DC 21-16
Hvíti Riddarinn-Gullni Örninn 19-21

Undanúrslit:
Lituanica-Tornado 21-14
Celtics-Gullni Örninn 21-9

Úrslit:
Celtics-Lituanica 16-21

Liðin sem léku til úrslita
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn, þjálfarar, fararstjórar og dómarar sem fóru fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótið árið 2004 í Solna í Svíþjóð.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið