© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.8.2010 | 15:14 | Kristinn | Mótahald
Úrslit á laugardaginn
Á laugardaginn kemur þann 21. ágúst munu úrslit í Sumardeildinni fara fram á Klambratúni (Miklatúni) á körfuboltavellinum sem er þar staðsettur.

Leikar hefjast kl. 13.00 með tveimur undanúrslitaleikjum sem fara fram á sama tíma og svo hefjast seinni tveir leikirnir strax á eftir. Þá eftir að komið er í ljós hvaða fjögur lið fara í undanúrslit verður gert stutt hlé með 3-stiga keppni.

Hvert lið sendir einn leikmann fyrir sína hönd og tekin verða 10 skot fyrir utan þriggja stiga línuna og meistari krýndur að því loknu.

Undanúrslitin verða spiluð á sama tíma það er tveir leikir í gangi í einu þannig að bæði lið sem mætast í úrslitum fái jafna hvíld fyrir úrslitaleikinn. Hljóðkerfi og DJ verður á staðnum og allir fá ís frá Kjörís á meðan birgðir endast.

· Um Sumardeildina
· Staðan

Dagskrá
Tími: 13.00 - 15.30
Keppt verður í 8-liða úrslitum með útsláttarfyrirkomulagi (Brackets):

kl. 13.00
1. b1 Lituanica vs. a4 Þristurinn
2. a2 Tornado vs. b3 Leiknir

kl. 13.30
3. a1 - Celtics vs. b4 Team DC
4. b2 - Hvíti Ridd. vs. a3 Gullni Örninn

kl. 14.00
Þriggjastiga keppni

kl. 14.15
5. Sigurvegari leik 1 vs. Sigurvegari leik 2
6. Sigurvegari leik 3 vs. Sigurvegari leik 4

14.45
7. Úrslitaleikur sigurvegarar úr leik 5 vs. leik 6

Athugið að tímar eru viðmið, ef dagskrá gengur hratt fyrir sig þá verður henni flýtt.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Axel Kárason tekur hér eitt af sínum fyrstu körfuboltaskotum á ævinni á heimatilbúna körfu í Sólheimum í Blönduhlíð þar sem hann bjó.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið