© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.8.2010 | 11:25 | Kristinn
Félagaskipti og umsóknir fyrir erlenda leikmenn
Nú fer í hönd tími félagaskipta fyrir íslendinga milli liða og fyrir erlenda leikmenn. Félagaskiptablað fyrir leikmenn sem eru í íslenskum liðum nú þegar er að finna hérna á forsíðu KKÍ til vinstri í aðalvalmynd.

Innlend félagskipti:
Fylla þarf það samviskusamlega út og því þarf að fylgja undirskrift forráðamanns fyrra liðs sem samþykkir brottför. Mikilvægt er einnig að tilgreina hvernig greiða á fyrir félagaskiptin. Sé millifært í banka þarf að senda kvittun á netfangið kki@kki.is en sé skuldfært á liðið sem gengið er í þarf forráðamaður þess liðs að samþykkja það með undirskrift á blaðið.

Að öðru leiti er ekki hægt að ganga frá félagaskiptum leikmanna.

Erlendir leikmenn:
Umsóknarblöð fyrir erlenda leikmenn og leiðbeiningar er að finna á síðunni undir www.kki.is/erlendir.asp. Þar er skýrt hvað þarf að fylla út en það fer eftir því hvaðan leikmenn eru að koma.

Við minnum á að fylla þarf út FIBA-umsóknir að nýju fyrir þá erlendu leikmenn sem leika áfram með sama liði og í fyrra þar sem keppnisleyfin gilda í eitt ár í einu.

Ef minnstu spurningar vakna er hægt að hafa samband við skrifstofu KKÍ í síma 514-4100 eða á netfangið kristinn@kki.is

Hægt er að sjá lista yfir félagaskipti hérna í PDF skjali.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Albert Óskarsson og Guðmundur Bragason í leik gegn Möltu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið