© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.8.2010 | 8:20 | Kristinn | Dómaramál
Sigmundur og Björgvin á ferð og flugi
FIBA dómararnir Sigmundur Már og Björgvin eru nýkomnir heim frá Andorra þar sem þeir dæmdu í C-deild U16 ára drengja og stúlkna. Mótið stóð yfir í um viku þar sem sex leikdagar voru á dagskrá en þeir dæmdu báðir alla dagana, sex leiki alls.

Sigmundur dæmdi meðal annars með frakka og spánverja sem báðir eru að fara til Tyrklands að dæma á komandi heimsmeistaramóti.

Miguel Betancor yfirmaður dómaramála FIBA Europe kom á mótið og fylgdist með og var með stuttan fyrirlestur fyrir þá dómara sem voru á mótinu og fengu okkar menn góða dóma og tilsagnir eftir sína leiki.

Næstu verkefni eru um næstu helgi en þá mun Sigmundur dæma í A-deild kvenna í Evrópukeppninni en þar verða þær Hollensku sem léku með Íslandi í riðli í fyrra á heimavelli að leika gegn Króatíu. Þar verður Sigmundur aðaldómari og verður með tvo aðstoðardómara með sér í væntanlegum hörkuleik.

Björgvin dæmir í B-deild kvenna leik Svíþjóðar og Slóveníu, en lið Slóveníu lék einnig með okkar stelpum í riðli í fyrra.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Davíð K. Hreiðarsson dómari ræðir við tröllið George Byrd hjá Hamar/Selfoss í leik Hamars/Selfoss og Þórs Þ. 4. janúar 2007 sem leikinn var á Selfossi.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið