© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.8.2010 | 8:40 | Kristinn | FIBA
HM: Vuvuzela útilokað frá mótinu
Hið margumtalaða Vuvuzela hljóðfæri virðist eiga í fá hús að vernda en FIBA hefur ákveðið að banna hljóðfærið á komandi Heimsmeistaramóti í Tyrklandi sem hefst í lok mánaðarins af heilsufarsástæðum. Flautað verður til leiks eftir 25 daga.

FIBA er fyrsta alheimssambandið sem bannar lúðurinn á mótum á sínum vegum. Bannið nær einnig til þokulúðra eða annara svipaðra lúðra, sem geta í lokuðu rými eins og körfuknattleikshöll, magnast upp og valdið heyrnarskaða áhorfenda fyrir utan truflun á samskiptum leikmanna, þjálfara og ekki síst dómara sem allt gæti komið niður á leiknum.

HM 2010 er verður væntanlega stærsti körfuknattleiksviðburður sögunnar og búist er við um 350.000 manns á leiki keppninnar á fjórum keppnisstöðum mótsins frá 28. ágúst til 12. september fyrir utan alla þá sem horfa á leikina á netinu og í sjónvarpinu.

24 lið taka þátt í mótinu, þar með taldir núverandi meistarar spánverja auk Ólympíumeistaranna frá Bandaríkjunum. 288 leikmenn skipa liðin sem leika 80 leiki á mótinu.

Sjö lið hafa hampað titlinum í gegnum tíðina. Sovétríkin og Júgóslavía hin sálugu ásamt Bandaríkjunum leiða listann með þrjá titla hvert. Það lið sem svo sigrar á mótinu fær sjálfkrafa sæti á Ólympíuleikunum í London 2012.

Vefsíða HM2010: turkey2010.fiba.com
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Á lokahófi KKÍ í Stapanum 2007 fengu Hafdís Helgadóttir og Valur Ingimundarson viðurkenningu fyrir störf sín í þágu körfuboltans.  Hafdís hlaut silfurmerki og Valur gullmerki.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið