© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.1.2002 | 0:23 | ÓÓJ
Njarðvíkurstúlkur síðastar til að tryggja sig inn í Höllina
Njarðvíkurstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í bikarúrslitaleik kvenna þar sem þær mæta KR 9. febrúar næstkomandi. Njarðvík vann Hauka 67-56 á heimavelli sínum í Njarðvík en KR komst í bikarúrslitaleikinn á mánudag með 44-55 sigri á ÍS. Þetta er í þriðja sinn frá upphafi sem Njarðvík kemst í bikarúrslitin en kvennalið félagsins hefur aldrei orðið bikarmeistari, tapaði fyrir KR 1983 og Keflavík 1996. KR-stúlkur sem eru núverandi bikarmeistarar hafa komist fimm sinnum í bikarúrslitaleikinn á síðustu átta árum og verður þetta í 14. sinn sem KR-konur leika um bikarinn en þær hafa átta sinnum fagnað sigri. Kvennalið Njarðvíkur varð einnig síðasta liðið til að tryggja sig inn í Höllina en með því er ljóst að KR og Njarðvík heyja tvöfalt einvígi í Höllinni 9. febrúar því bæði karla- og kvennalið félaganna munu þá keppa um bikarinn.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bikarmeistarar Fram 1982. Aftari röð frá vinstri: Bjarni P. Magnússon formaður körfuknattleiksdeildar, Hörður Arnarson, Guðmundur Ómar Þráinsson, Þórir Einarsson, Símon Ólafsson, Björn Magnússon, Þorvaldur Geirsson og Kolbeinn Kristinsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Þorkell Andrésson, Viðar Þorkelsson, Val Bracy, Lárus Thorlacius og Guðsteinn Ingimarsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið