© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.6.2010 | 12:30 | Kristinn | Mótahald
Sumardeildin · Götuboltamót KKÍ í sumar
KKÍ hefur ákveðið að efna til veglegs götuboltamóts eða “Streetball-móts” í sumar. Stefnt er að því að leika í nokkrum riðlum utandyra út um allt land í sumar og leikið er með klassísku 3-á-3 sniði þar sem liðin skiptast á að spila sókn eftir skoraða körfu.

Lið skrá sig til leiks og raðað verður í riðla eftir staðsetningu. Þannig er miðað við að lágmarki sex lið verða í riðli og hvert lið myndi leika um það bil 10 leiki.

Mótið fer þannig fram að KKÍ raðar upp riðlum með þeim liðum sem skrá sig til leiks og síðan munu liðin sjálf ákveða leikdaga og sjá til þess að þau klári að leika sína leiki fyrir mótslok. Mótstími verður ljós þegar búið er að taka við skráningum og raða í riðla en gera má ráð fyrir því að leikir þurfi að fara fram milli ca. 21. júni fram í miðjan ágúst. Í hverju liði er fyrirliði sem sér um að ákveða í samráði við fyrirliða mótherjanna hvenær leikir fara fram.

Þá er stefnt að því að hafa veglegan úrslitadag með þeim liðum sem komast áfram úr riðlunum sínum um miðjan ágúst með skemmtilegri umgjörð.

Helstu reglur eru þær að mótið er opið öllum sem vilja taka þátt og eru 18 ára eða eldri, óháð því hvort um ræðir áhugamenn um körfubolta eða leikmenn úr deildum KKÍ. Hámark sex leikmenn mega vera saman í liði og þátttökugjald á hvert lið er 3.000 kr.

Nánari upplýsingar, eins og leikreglur, framkvæmd móts og leikja og fleira er að finna á kki.is/sumardeildin.asp og hægt er að senda spurningar og þátttökutilkynningar inn á netfangið sumardeildin@kki.is.

Frestur til skrá sig til leiks er til og með föstudagsins 18. júní en eins og áður segir er þátttökugjaldið 3.000 kr. á lið en upplýsingar um greiðslu og hvað þarf að senda inn með þátttökutilkynningunni er að finna hér fyrir neðan.

Úrslit og staða mun svo birtast á mótavef KKÍ.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ársþingi KKÍ snemma á tíunda áratugnum. Á myndinni má meðal annars sjá Pétur Hrafn Sigurðsson, Hannes S. Jónsson, Guðjón Þorsteinsson, Eyjólf Guðlaugsson, Jón Einarsson, Kolbein Pálsson, Ingólf Jónsson, Sólrúnu Önnu Rafnsdóttur og Sigurð Valgeirsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið