© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.5.2010 | 9:55 | Kristinn
NBA: Lakers og Boston mætast í úrslitunum í ár
Í nótt réðst það á heimavelli Phoenix Suns að það verða stórveldin LA Lakers og Boston Celtics sem munu mætast í úrslitum NBA-deildarinnar í ár.

Lakers vann Phoenix í leik liðanna í nótt og þar með einvígið 4-2. Boston sigraði Orlando einnig 4-2 í úrslitum austurstrandarinnar.

Þetta verður í 12. sinn sem Lakers og Boston mætast í úrslitum deildarinnar en þessi lið eru langsigursælustu liðin í sögu hennar. Boston er með 17 titla og Lakers 15 og er núverandi meistari. Saman eiga liðin 33 titla af 64 í sögu deildarinnar.

Þess er skemmst að minnast að Boston sigraði Lakers í úrslitunum fyrir tveimur árum en nú verður nýr kafli skrifaður í baráttunni milli þessara liða.

Fyrsti leikur liðanna fer fram á aðfaranótt föstudagins 4. júní í Los Angeles. Leikurinn hefst kl. 21.00 á austurstrandatíma fimmtudaginn 3. júní sem þýðir að hann hefst um kl. 01.00 eftir miðnætti að íslenskum tíma en munur á Íslandi og austurströnd eru fjórar klukkustundir. Allar tímasetningar á NBA síðum miðast við austurstrandatíma.

Allir leikirnir í lokaúrslitunum verða sýndir beint á Stöð 2 Sport.

Leikjaplan úrslitanna: (dags. og tímar miðað við íslenskan tíma)
Leikur 1: 3. júní - fimmtudagur í LA kl. 01.00
Leikur 2: 6. júní - sunnudagur í LA kl. 00.00
Leikur 3: 8. júní - þriðjudagur í Boston kl. 01.00
Leikur 4: 10. júní - fimmtudagur í Boston kl. 01.00

Leikur 5: 13. júní - sunnudagur í Boston kl. 00.00
Leikur 6: 15. júní - þriðjudagur í LA kl. 01.00
Leikur 7: 17. júní - fimmtudagur í LA kl. 01.00




Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Vilnius í Litháen v/þáttöku í undanúrslitakeppni Evrópumótsins árið 1998.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið