© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.4.2010 | 10:41 | Kristinn
Íþróttir fyrir afreksfólk í Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið í knattspyrnu, körfuknattleik, golfi og skíðum. Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er (félagsfræði-, mála-, náttúrufræði- og viðskipta og hagfræðibraut).

Námið verður kynnt á kynningarfundi í Borgarholtsskóla miðvikudaginn 14. apríl kl. 17:30.

Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Fjórar námseiningar á önn.

Kröfur til nemenda :
• Að hafa stundað íþrótt sína í nokkur ár og vera virkur iðkandi í íþróttafélagi.
• Að hafa staðist grunnskólapróf
• Vera vímuefnalaus íþróttamaður/íþróttakona.
• Geta tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþrótta.
• Standast eðlilega námsframvindu og ljúki u.þ.b. 15-19 einingum á önn.
• Gerð er krafa að nemendur hafi a.m.k. 95% skólasókn í öllum námsgreinum.

Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið verður innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld.

Frábær kennsluaðstaða:
• Egilshöll – íþróttahús Fjölnis
• Korpúlfsstaðir - Básar

Umsókn:
Nemendur sækja um skólavist á bóknámsbraut rafrænt. Umsóknareyðublað fyrir AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ er á www.bhs.is (undir “bóknám til stúdentsprófs”) eða á skrifstofu skólans. Skil á umsóknum er 7. - 11. júní.

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Jóhannsson, Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS
í síma 896-8566 og á bjarni@bhs.is.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Einar Árni Jóhannsson var valinn þjálfari ársins í Iceland Express deild karla tímabilið 2006-2007. Hér sést hann með verðlaunagripi sína.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið