© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.3.2010 | 5:00 | Kristinn | Mótahald
Úrslitakeppni 2. deildar: Óskað eftir mótshaldara
KKÍ óskar eftir umsóknum um mótshald á úrslitakeppni 2. deildar

KKÍ óskar eftir umsóknum frá liðum sem hafa áhuga á að halda úrslitakeppni 2. deildarinnar í ár. Um er að ræða 8-liða úrslit sem færu fram eina helgi frá föstudegi til sunnudags. Keppt verður helgina 16.-18. apríl.

ATHUGIÐ að fleiri en eitt lið geta sameinast um að halda úrslitakeppnina þar sem leika verður á tveimur leikvöllum, en einn völlur er fyrir hvorn riðil.

Félögin sem fara í úrslit deila saman dómarakostnaði fyrir keppnina í heild. Mótshaldarinn sér um að manna ritaraborð og getur rekið sjoppu og/eða veitingasölu og sér um alla umgjörð leikja.

Leikið er í tveimur fjögurra liða riðlum. Leikið er á tveimur völlum. Hvert lið spilar einn leik á föstudegi og tvo á laugardegi. Efstu tvö liðin fara áfram í úrslit á sunnudegi þar sem er leikið í undanúrslitum og svo um 3. sæti og úrslitaleikur.

Liðin sem fara í úrslit:
A-riðill: 2 efstu liðin
B-riðill: 3 efstu liðin
C-riðill: 2 efstu liðin

Áttunda og síðast liðið væri það lið í 3. sæti A- eða C-riðils sem hefði betri árangur s.s. flesta sigra.

Umsóknir skulu sendar á kki@kki.is eigi síðar en á föstudaginn 19. mars næstkomandi.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
UMFN og KR mættust í Bikarúrslitaleiknum í 10. flokki karla 2008 á Bikarúrslitahelginni sem haldin var í Keflavík. UMFN vann 77-53 og var Valur Orri Valsson sem er hér til vinstri valin maður leiksins. Með honum að taka við bikarnum er Oddur Birnir Pétursson en þeir eru fyrirliðar Njarðvíkur. Feður þeirra beggja, Valur og Pétur, léku lengi með Njarðvík á sínum yngri árum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið