© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.3.2010 | 13:40 | FÍR
Haukur Pálsson til Maryland
Landsliðsmaðurinn Haukur Pálsson hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli liða í Evrópu og skóla í Bandaríkjunum.

Sl. sumar ákvað Haukur að fara til Florida til að stunda nám og leika körfubolta með Montverde skólanum. Það hefur gengið mjög vel og hafa margir góðar háskólar verið á eftir honum og þar á meðal Maryland.



Á dögunum var Haukur staddur á leik Maryland og Duke en hann var þar í boði skólans. Duke var fyrir þennan leik í 4. sæti á listanum yfir bestu skóla landsins og Maryland í 22. Hægt er að sjá listann hér

Fyrir framan 18.000 áhorfendur höfðu heimamenn betur 79:72

Nú hefur Haukur ákveðið að fara til Maryland en hann hefur gert munnlegt samkomulag við skólann og gengið verður frá öllum formlegum pappírsmálum í apríl.

Heimasíða Maryland

Maryland leikur í ACC riðlinum sem hefur undanfarna áratugi verið einn af 2-3 bestu riðlum landsins. Á meðal skóla sem leika í ACC eru: North Carolina, Virginia, Florida State, Clemson og Georgia Tech svo einhverjir séu nefndir.

Maryland vann NCAA meistaratitilinn 2002 sem er eini titill skólans.

Hægt er að lesa ýmsan fróðleik um háskólakörfuboltann hér

Það er ljóst að spennandi tímar eru framundan hjá þessum stórefnilega leikmanni.




Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá lokahófi KKÍ 1988 í gamla Broadway í Mjódd.  Guðmundur Þorsteinsson úr stjórn KKÍ afhendir Pálmari Sigurðssyni viðurkenningu sem besta leikmanni Íslandsmótsins.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið