© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.3.2010 | 15:00 | Kristinn | Mótahald
Metþáttaka á Nettómótinu um helgina
Metþáttaka er á Nettómótinu sem haldið verður í 20 sinn í Reykjanesbæ um helgina.
Alls hafa um 1000 þátttakendur skráð sig til leiks eða 148 keppnislið frá 22 félögum og leiknir verða 360 leikir á 13 völlum.


Liðin sem boðað hafa þátttöku sína eru:
Ármann, Breiðablik, Fjölnir, FSu, Grindavík, Haukar, Hekla, Hörður, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KFÍ, Kormákur, KR, Njarðvík, Reykdælir, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Akureyri.

Mótið fer fram í Heiðarskóla, Akurskóla, Íþróttahúsinu í Njarðvík, Íþróttahúsinu við Sunnubraut og Íþróttahúsinu á Ásbrú og kemur fjöldi sjálfboðaliða að skipulagningu þess sem er í höndum barna- og unglingaráðs köfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur.

Auk leikja er boðið upp á ýmis konar afþreyingu og má þar nefna pizzuveislu, bíó, sund, kvöldvöku, stanslaust fjör í Reykjaneshöllinni og heimsókn til Skessunnar í hellinum auk kvöldvöku. Foreldar og keppendur gista í grunnskólum Reykjanesbæjar þar sem boðið verður upp á morgunmat, hádegismat og kvöldverð keppnisdagana.

Umgjörð mótsins er glæsileg en markmið þess er að börn og foreldrar haldi heim sælir og glaði rmeð góðar minningar.

Mótið hefst kl. 08:00 á laugardagsmorgun með móttöku liða í Holtaskóla en kl. 09:00 hefjast fyrstu leikir á öllum völlum.

Sjá nánar á nettomot.blog.is.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ægir Þór Steinarsson var valinn besti leikmaður Norðurlandamótsins 2007.  Hér fagnar hann eftir úrslitaleikinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið