© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.12.2001 | 11:35 | bl
Firma og félagahópakeppni VALS 2001
Valsmenn munu halda firma og félagahópakeppni á milli jóla og nýárs. Mótið fer fram fimmtudaginn 27., föstudaginn 28. og laugardaginn 29. desember 2001.

Leikið verður í báðum sölunum að Hlíðarenda. Mótafyrirkomulagið fer eftir fjölda þátttökuliða. Leikið verður í riðlum og úrslitakeppni fer fram á laugardeginum þar sem öll liðin leika a.m.k. einn leik.

Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða verðlaunaveitingar(Egils-gullpeningar) í fljótandi formi að vanda.

Á laugardeginum verða seldar léttar veitingar á vægu verði að Hlíðarenda.Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 15 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Aðeins er leyfilegt að hafa einn leikmann úr 1. eða Epson deild í hverju liði.

Þátttökugjald er kr. 15.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs.

Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðs. Gleðileg jól og
farsælt komandi ár með þökkum fyrir það liðna.

Torfi Magnússon
Grenimel 3
107 Reykjavík
s: 551 2523
tm@ismennt.is
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bekkjarlið 5. b í Fellaskóla sigraði í fyrsta Landsbankamóti ÍR í minnibolta 1983, en mótið var milli 5. bekkja í Breiðholti. Frá vinstri, Kjartan G. Björnsson, Grétar V. Grétarsson, Hermann Hauksson, Börkur Jakobsson, Gunnar Þór Arnarson og Rúnar Þ. Guðmundsson. Fyrir aftan stendur þjálfari drengjanna og íþróttakennari, Sigvaldi Ingimundarson. Sem kunnugt er varð einn þessara drengja, Hermann Hauksson; landsliðsmaður í körfubolta.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið