S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
20.1.2010 | 22:15 | Kristinn | Mótahald
Lokastaðan í fyrri hluta Iceland Express-deildar kvenna
Í kvöld mættust Keflavík og Haukar í Reykjanesbæ og léku til úrslita um það hvort liðið myndi enda í A-riðli deildarinnar í seinnihluta mótsins. Leiknum lauk með sigri Keflavíkur 85:65 og tryggðu þær sér því 4. sætið í deildinni. Leikið verður innan A og B deildar heima og heiman eða samtals 6 leiki á hvert lið og þá mun lokastaðan ákveða hvaða lið leika saman um sæti í undanúrslitum. Tvö efstu lið A-riðils fara beint í undanúrslit og sitja hjá meðan lið 3 og 4 mæta efstu tveim liðunum úr B-riðli. Lokastaðan: (sigrar úr fyrstu 14 leikjunum í sviga) 1. KR (14) 2. Grindavík (10) 3. Hamar (9) 4. Keflavík (8) ----------- 5. Haukar (6) 6. Njarðvík (4) 7. Snæfell (3) 8. Valur (2) Einn leikur fór fram í 1. deild karla en Ármann tapaði á heimavelli gegn liði Þórs frá Þorlákshöfn, 78:127. |