© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.8.1999 | 9:32 | -
Tvö töp
Unglingalandslið karla 20 ára og yngri tapaði fyrir Pólverjum, 89-96 (53-47), í Evrópukeppni pilta í Malmö í Svíþjóð í gærkvöld. Íslenska liðið lék frábærlega í fyrrihálfleik þar sem hvert 3ja stiga skotið á fætur öðru rataði í körfuna. Slæmur kafli í byrjun seinni hálfleiks hleypti Pólverjunum inn í leikinn aftur og þeir reyndust svo sterkari í lokin þar sem stóru mennirnir voru komnir í villuvandræði eftir erfiða baráttu við hávaxið lið Pólverja, sem var skipað 8 leikmönnum yfir 2 metra. Stig Íslands: Logi Gunnarsson 19 (5/6 í 3ja), Morten Szmiedowicz 18, Sæmundur Oddsson 14 (7 fráköst), Jón N. Hafsteinsson 11, Guðlaugur Eyjólfsson 9 (3/3 í 3ja), Örlygur Sturluson 8 (6 stoðs.), Sævar Sigurmundsson 4, I. Magni Hafsteinsson 3 og Ísak Einarsson 3. 18 ára og yngri landsliðið tapaði aftur á móti fyrir Tyrkjum, 58-66 (29-28), á Írlandi. Íslendingar spiluðu góða vörn, en varnarleikurinn var afar slakur, 0/21 í 3ja stiga skotum, og var aðeins ein karfa skoruð utan teigs. Tyrkir voru líkt og Pólverjar með hávaxið lið, 8 menn yfir 2 metra. Hlynur Bæringsson var lang bestur Íslendinga í leiknum, skoraði 26 stig og tók 10 fráköst, Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig og aðrir minna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ingi Gunnarsson leikmaður og fyrirliði ÍKF var snjall bakvörður
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið