© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.12.2009 | 8:00 | FÍR
Firma- og félagahópakeppni VALS 2009
Hin árlega Firma- og félagakeppni Vals verður að þessu sinni haldin mánudaginn 28. desember 2009. Ef þátttaka verður (of) góð gætu úrslitaleikir farið fram daginn eftir.

Leikið verður í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Leikið verður á tveimur leikvöllum samtímis.

Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna„peningar“ að vanda.

Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum.

Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Iceland Expressdeild í liðunum.

Þátttökugjald er kr. 20.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Innifalið í gjaldinu eru veitingar í VIP-Salnum.

Greiða má í gegnum heimabanka inn á reikning:
Banki: 0101 - 26 - 3909
kt. 581181 - 0279

Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra og í allra síðasta lagi fyrir Þorláksmessu


Torfi Magnússon
tm@ismennt.is
Sími: 661 8012

Hannes Birgir Hjálmarsson
hbh@talnet.is
Sími: 697 5999
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson, Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson taka fund fyrir bikarleik Grindavíkur og Snæfells þann 26. nóvember 2006, leik sem jafnframt var 1000. KKÍ leikur Rögnvaldar á ferlinum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið