© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.12.2009 | 17:35 | Kristinn | Þjálfaramál
Lee Taft kemur aftur til landsins - Uppbygging á æfingakerfum
Lee Taft, einn virtasti þjálfari Bandaríkjanna, kom, sá og sigraði á námskeiði í hraðaþjálfun í september s.l. hjá Keili. Gengu margir þjálfarar svo langt að segja það eitt besta og gagnlegasta námskeið sem þeir hefðu nokkurn tímann sótt.

Keilir kynnir nú 2ja daga námskeið með Lee Taft 19. og 20. febrúar í æfingakerfasmíð sem er sjálfstætt framhald af hraðaþjálfunarnámskeiðinu. Lee hefur hannað einstakt æfingakerfaform sem hann mun kynna þátttakendum á námskeiðinu óháð íþróttagrein með áherslu á hraða, styrk og viðbragð.

Æfingakerfi Lee byggja að mestu á að blanda þessum þáttum inní íþróttaæfingarnar með það að markmiði að þær skili árangri og séu spennandi og auðveldar í skipulagi.

Námskeiðið er sérstaklega ætlað metnaðarfullum íþróttaþjálfurum sem vilja vinna markvisst með íþróttamenn sína í átt að hámarksárangri.

Kynnið ykkur málið hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jón Arnór Stefánsson, leikmaður íslenska landsliðsins, gægist hér framhjá tveimur varnarmönum hollenska liðsins í leik liðanna í ágústmánuði 2009. Hollendingar reyndu að klófesta íslenska liðið en höfðu ekki erindi sem erfiði enda vann Ísland góðan sigur 87-75 eftir að hafa leitt með allt að 28 stigum. Jón Arnór var stigahæstur allra leikmanna á vellinum mdð 23 stig.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið