© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.12.2009 | 12:00 | Kristinn | Mótahald
Scania Cup haldið í þrítugasta sinn
Um hverja páska hefur SBBK haldið Scania Cup mótið í bænum Södertaalje í Svíþjóð.

Næsta mót verður haldið daganna 1.-4. apríl 2010. Scania Cup er boðsmót og er það stefna mótshaldara að bjóða aðeins bestu félagsliðum Norðurlanda á mótið. Í vor verður keppt í eftirtöldum 12 aldursflokkum drengja og stúlkna: 1992-1993, 1994, 1995, 1996, 1997 og 1998.

Mótið hefur marga kosti. Hvert lið fær marga leiki, leikir eru langir (4x8 mín. og klukka stöðvuð), andstæðingar eru góðir, dómgæsla er góð (flestir leikir eru dæmdir af þremur dómurum) og svo framvegis.

Íslensk lið hafa verið dugleg að mæta á þetta mót í gegnum tíðina. Á síðasta móti voru þrjú íslensk strákalið (ÍBV ’96, KR ’96 og Fjölnir ’94) og stóðu þau sig vel. Íslensku liðin verða væntanlega fleiri á mótinu í vor.

Á næstu dögum mun stjóri mótsins (Erik Lindell) senda þeim íslenskum liðum sem stóðu sig vel í úrslitum Íslandsmótsins síðasta vor boð um þátttöku í næsta móti. Þau strákalið sem lentu í tveimur efstu sætunum munu fá boð og stúlknaliðin sem urðu Íslandsmeistarar munu einnig fá boð.

Þjálfarar og forsvarsmenn þeirra liða sem eiga að fá boð eru beðin um að hafa samband við Stefán Arnarson ( stefanar@simnet.is) ef boðið frá Erik misferst og þau hafa áhuga á því að fara á mótið.

Önnur íslensk lið sem hafa áhuga á því að fara á mótið og fá ekki boð í fyrstu umferð geta haft samband við Stefán og hann mun ræða við mótstjórann og aðra aðila um möguleika þessara liða á því að fá boð.

Þau lið sem koma til með að fara á mótið geta síðan haft samband við Erik og hann mun sjá um mest allt varðandi keppnisferðina, nema að bóka flug til Stokkhólms.

Scaniavinir

Sagan - Scania Cup meistarar, kóngar og drottningar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og ÍR í 1. deild kvenna í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1983.  Neðst á lyklinum eru Sóley Indriðadóttir og Svanhildur Guðlaugsdóttir - mæður núverandi leikmanna meistaraflokks, Hönnu Hálfdánardóttur og Helenu Sverrisdóttur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið