© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.11.2001 | 10:40 | bl
Njarðvík naumlega áfram í bikarnum
Hart var barist í 32-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ & Doritos í gær og tvö úrvalsdeildarlið féllu úr keppni. Njarðvík sigraði Grindavík í stórleik 32-liða úrslitanna 79-77 á heimavelli og Þór Ak. lagði Skallagrím fyrir norðan 114-93.

Önnur úrslit í gær voru þau að KR vann Hött fyrir austan með miklum mun (57-118), Haukar unnu ÍV (118-61) og Stjarnan lagði Snæfell fyrir vestan (85-68).

Fyrr í vikunni höfðu ÍS, Selfoss, Fjölnir, ÍA, Keflavík, Þór Þorl. og Tindastóll tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.

Í kvöld er stórleikur í Smáranum þar sem Breiðablik tekur á móti bikarmeisturum ÍR. Þá tekur HK á móti Val, ÍFL á móti Reyni S. og 32-liða úrslitunum líkur með leik KFÍ og Hamars á Ísafriði á þriðjudaginn, en þessum leik var frestað í fyrradag.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Magni Hafsteinsson, leikmaður Snæfells, sendir Erlingi Snæ Erlingssyni, dómara, tóninn eftir tapleik Snæfells gegn Njarðvík í Lýsingarbikarnum í janúar 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið