© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.11.2009 | 0:14 | FÍR
Jakob og Helgi eru að gera það gott í Svíþjóð
Jakob í leik með Sundsvall
Eins og flestir körfuboltaáhugamenn vita þá leika félagarnir Jakob Sigurðarson og Helgi Magnússon í sænsku deildinni í vetur.

Jakob er leikmaður með sænsku meisturunum Sundsvall sem hafa byrjað leiktíðina mjög vel. Jakob hefur verið frábær fyrir liðið og verið þeirra jafnbesti leikmaður. Jakob er á lista yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar.

Helgi gerði samning við Solna Vikings sem urðu meistarar 2008 og léku til úrslita gegn Sundsvall sl. vor. Helgi hefur verið traustur fyrir liðið og verið að gegna veigameira hlutverki eftir því sem leikjum hefur fjölgað. Solna vann einmitt Sundsvall í Íslendingaslagnum um síðustu helgi.

Hægt er að fylgjast með gangi mála í deildinni hér.

Á heimasíðu sænsku deildarinnar er hægt að fylgjast með leikjunum í beinni tölfræðilýsingu. Einnig eru stöku leikir sýndir beint á netinu. Heimasíða sænsku deildarinnar

Á þessu sést að árgangabræðurnir og fyrrum samherjar úr KR eru að standa sig feykilega vel og hafa vakið mikla athygli ytra.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið