S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
12.11.2001 | 14:55 | phs
Drengjalandsliðið til Írlands
Dregið hefur verið í riðla í Evrópukeppni drengjalandsliða. Íslenska liðið sem skipað verður leikmönnum fæddum 1987 og síðar er í D-riðli sem fram fer á Írlandi 28. ágúst til 1. september 2002. Með Íslendingum í riðli eru auk heimamanna lið Ítalíu, Finnlands og Englands. 3 efstu liðin í riðlinum komast áfram í undanúrslitariðla.
Þjálfari liðsins er Benedikt Guðmundsson og honum til aðstoðar eru þeir Ágúst S. Björgvinsson og Einar Árni Jóhannsson. Riðlaskiptingin er eftirfarandi: A-riðill í Búlgaríu Búlgaría, Tyrkland, Úkraína, FYROM, Bosnía Hersegovína B-riðill í Tékklandi Tékkland, Georgia, Sólvenía, Pólland, Austurríki C-riðill í Ungverjalandi Ungverjaland, Ísrael, Þýskaland, Portúgal, Eistland D-riðill á Írlandi Írland, Ítalía, Finnland, England, Ísland E-riðill í Slóvakíu Slóvakía, Lettland, Króatía, Belgía, Svíþjóð. |