© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.10.2009 | 12:00 | Kristinn
Utandeild Breiðabliks
Breiðablik mun eins og undanfarin ár standa fyrir utandeild í körfuknattleik. Öllum er heimil þátttaka sem ekki leika í Iceland Express-deildum karla og kvenna eða í 1. deild karla.

Öllum liðum verða tryggðir 5 leikir í deildinni en keppnisfyrirkomulag verður ákveðið þegar ljóst er hversu mikill fjöldi liða tekur þátt.

· Spilaðir eru 2x16 mínleikir með gangandi klukku. Síðustu 2. mín í seinni hálfleik er klukkan stoppuð eftir KKÍ reglum (þegar bolti er útaf, við villur, skoraða körfu og svo framvegis)
-1 x leikhlé er í seinni hálfleik.


· Þegar réttur er á 2x eða 3x vítaskotum þá er eingöngu tekið eitt skot sem gildir þá 2 eða 3 stig eins og við á.


· Engin skotklukka er í leikjum. Dómara er þó heimilt að hefja upphátt niðurtalningu úr 10 sek telji hann að um tilraun til leiktafar sé að ræða.
-Skiptingar eru leyfðar í hvert sinn sem bolti er úr leik en klukkan ekki stöðvuð meðan skipting fer fram.

· 12 leikmenn á skýrslu í hverjum leik.

Leikir fara fram í Smáranum og verður leikið á föstudagskvöldum í vetur. Hægt verður að fylgjast með niðurröðun og úrslitum leikja á Breidablik.is.

Þátttökugjald er kr. 45.000 pr. lið. Hvert lið fær 5 leiki með dómara og ritaraborði.

Þátttökutilkynningum þar sem fram kemur nafn liðs, nafn, heimilisfang, gsm sími og netfang forsvarsmanns, skal skila til Péturs Hrafns Sigurðssonar, petur@getraunir.is fyrir miðvikudaginn 21. október.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sunnudagurinn 15. febrúar 2009 var mikil körfuboltahátíð en þá fóru fram úrslitaleikirnir í Subwaybikarnum. Þegar leikmenn liðanna voru kynntir í upphafi leiks þá hljóp með þeim ungur iðkandi frá félaginu. Það hefur verið mikil upplifun fyrir ungu iðkendurna að fá að hlaupa með hetjunum sínum út á völl en hér hleypur einn ungur leikmaðru með Lóu Dís Másdóttur, leikmanni Keflavíkur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið