© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.9.2009 | 0:01 | Kristinn | FIBA
EM · 8 liða úrslit: Ender Arslan hetjan og skúrkurinn
Ender Arslan jafnaði leikinn fyrir Tyrkland með því að brjótast í gegnum vörn Grikkja og tryggði sínu liði framlengingu um leið og tíminn rann út. Hann klikkaði hinsvegar á þriggjastiga skoti sem hefði sent Tyrkland áfram í undanúrslitin í framlengingunni.

Það gekk mikið á í kvöld í lokaleikjunum tveim í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar í Póllandi. Fyrri leikur dagsins var æsispennandi og fór í framlengingu milli Tyrklands og Grikklands. Þar reyndust Grikkir hlutskarpari að lokum en Tyrkir hefðu getað stolið sigrinum þar sem þeir áttu síðasta skotið fyrir utan þriggjastigalínuna. Leikurinn fór 76:74.

Í hinum leik kvöldsins sýndu Slóvenar úr hverju þeir eru gerðir eftir að hafa verið undir 15 stigum í seint í fyrri hálfleik. Þeir komu til baka og unnu tveggja stiga sigur á Króötum, 67:65, og fara því í undanúrslitin sem fara fram á morgun, laugardag, og tryggðu sér sæti á HM í Tyrklandi næsta haust.

Jafnframt verður leikið um hvaða lið leika um sæti 5-6 sem gefa sæti á HM að ári á morgun og á sunnudaginn eru svo lokaleikirnir í keppninni.

· 4-liða úrslitin ·
Spánn · Grikkland
Serbía · Slóvenía

· Fyrstu leikir um 5.-8. sæti ·
Frakkland · Tyrkland
Rússland · Króatía
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jakob Sigurðarson tekur hraustlega á því í tapleik gegn Finnum í Laugardalshöll 6. september 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið