© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.9.2009 | 9:05 | Kristinn | FIBA
EM í Póllandi: 8-liða úrslitin klárast í dag
Pau Gasol var allt í öllu í gær hjá spánverjum, skoraði 28 stig, var með níu fráköst og þrjú varin skot og var hæðstur í öllum þessum tölfræðiþáttum í leiknum

Í dag skýrist hvort það verður Tyrkland eða Grikkland sem mun fá það verðuga verkefni að leika gegn liði spánverja í undanúrslitunum á EM 2009. Leikur þeirra hefst kl 16.15 í dag.

Þessar nágranna þjóðir hafa eldað grátt silfur í gegnum tíðina og má búast við "stríði" á körfuboltavellinum í dag þar sem leikið verður til síðasta blóðdropa.

Lið Heimsmeistara Spánar er loksins komið í sinn eðlilega gír og hefur unnið sannfærandi síðustu tvo leiki á mótinu og sýnt allar sínar bestu hliðar. Þeir yfirkeyrðu lið frakka í gær og héldu meðal annars Tony Parker í 6 stigum.

Slóvenar og Króatar leika í seinni leik dagsins kl 19.00 en bæði lið freista þess að komast í undanúrslit í fyrsta skipti. Slóvenar hafa verið sterkir á mótinu til þessa og urðu fyrstir til að vinna Tyrkland í lokaleik milliriðlanna sem tryggði þeim efsta sætið og leik gegn Króötum sem urðu í 4. sæti hins milliriðilsins.

Sigurvegari úr þessum leik mætir liði Serbíu sem vann Rússland í gær.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Frá lokaathöfn leikanna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið