© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.9.2009 | 23:45 | Kristinn | FIBA
Úrslit dagsins á EM í Póllandi
Hidayet Türkoglu, leikmaður Tyrklands og Toronto Raptors, hafði sig hægan í dag og hitti aðeins úr 1 af 16 skotum sínum utan af velli. Það kom þó ekki að sök þar sem Tyrkland hafði sigur.

Í dag voru þrír hörkuleikir á EM í Póllandi en liðin sem léku í dag eiga einn leik eftir hvert í milliriðlinum og fara þeir fram á miðvikudaginn.

Spánn styrkti stöðu sína verulega með því að leggja Lithaá að velli 84:70 í fyrsta leik dagins. Þar með er ljóst að Litháen kemst ekki áfram þó þeir vinni sinn síðasta leik og Pólland tapi gegn Spánverjum á miðvikudaginn.

Slóvenar héldu áfram að sýna mátt sinn sigruðu heimamenn í pólska liðinu 76:60 og eru í öðru sæti riðilsins. Þeir mæta efsta liðinu, Tyrkjum, í síðasta leik sínum í milliriðlinum. Það má búast við hörku leik þar þar sem sigur í riðlinum er að veði.

Tyrki unnu Serbíu og eru ennþá taplausir á mótinu eins og Frakkar. Tyrkland vann 69:64.

Hægt er að sjá myndband með samantekt frá leikjum dagsins á vef www.fibatv.com sem fleira skemmtilegt.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Osló í Noregi í janúar 1986.  Jón Kr. Gíslason, Guðni Guðnason, Valur Ingimundarson og Pálmar Sigurðsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið