
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 9.9.2009 | 8:48 | Stefán Dómaranámskeið 19. og 20. september   Bóklega kennslan verður kennt í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á laugardeginum og sunnudagsmorgni verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður eftir hádegi á sunnudegi. Dagskrá: Laugardagur 19. september Íþróttamiðstöðin í Laugardal 3. hæð 13-17 Fyrirlestrar og umræður - bóklegt Sunnudagur 20. september Íþróttamiðstöðin í Laugardal 3. hæð 10-12 Fyrirlestur og umræður - bóklegt 12 Bóklega prófið 13-16 Verklega prófið Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans. Hér má sjá fræðsluáætlun KKÍ. Hér má sjá mat matsnefndar á innsendum ferilskrám frá því í vor. Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta. Síðasti skráningardagur er 16. september. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu. Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, síma, heimilisfang, e-mail og félag. |