© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.8.2009 | 21:45 | FÍR
Það styttist í leik Íslands og Hollands
Francisco Elson er hér í búningi San Antonio í baráttu við Jason Kapono
Laugardaginn 22. ágúst verður fyrsti opinberi landsleikurinn í Evrópukeppninni í íþróttahúsi Smárans í Kópavogi þegar Holland kemur í heimsókn. Leikurinn hefst klukkan 16:00.

Hollendingar eru sem stendur í öðru sæti í riðlinum og þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að tryggja stöðu sína í baráttunni um að spila um laust sæti í A-deild.

Lið gestanna er mjög hávaxið, en fimm leikmenn eru 210cm eða hærri og allt í allt eru átta leikmenn yfir 2 metra. Sá hæsti eru 222cm og heitir kappinn sá Remon VAN De Hare.



Nokkrir af lykilmönnum í liði andstæðinganna eru:

Francisco Elson sem leikur með Milwaukee Bucks í NBA deildinni, Peter Van Passen fyrirliði liðsins sem er virkilega duglegur leikmaður og hefur oft reynst Íslendingum erfiður, bakvörðurinn Arvin Slagter sem m.a. skoraði 22 stig og gaf 7 stoðsendingar í síðasta leik gegn Austurríki og svo má nefna nýjasta NBA leikmann þeirra, hinn unga Henk Norel sem leikur á Spáni með Joventud Badalona.

Þjálfari liðsins er frá Ísrael og heitir Gadi Kedar

Leikurinn úti gegn Hollandi fyrir ári síðan var jafn mestan part leiksins, það var aðeins í lokin sem leiðir skildu og heimamenn knúðu fram sigur. Á heimavelli er kjörið tækifæri að halda dampi og vinna góðan sigur

Íslenska liðið getur á góðum degi unnið það hollenska og því er mikilvægt að fá góðan stuðning frá áhorfendum. Liðið vann góðan sigur á Dönum í Álaborg og koma með sjálfstraust í leikinn gegn Hollandi.

Það er óhætt að hvetja fólk til að mæta í Smárann á laugardaginn til að sjá góðan leik liða sem hafa innan sinna raða frábæra íþróttamenn sem gaman er að horfa á.

Er ekki alveg tilvalið að leggja Hollendingana í miðri hátíð er kennd er við menningu?

Miðasala er í fullum gangi á midi.is Miðaverð er aðeins 1000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 15 ára og yngri.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá fundi Nar Zanolin framkvæmdastjóra FIBA Europe með fulltrúm Norðurlandanna í Reykjavík í júní 2005.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið