© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.8.2009 | 8:00 | FÍR
NBA leikmenn í Smáranum 22. ágúst
Laugardaginn 22. ágúst gefst íslenskum áhugamönnum um NBA körfuboltann að sjá tvo leikmenn sem eru á mála hjá NBA liðum.

Annars vegar er um að ræða Francisco Elson leikmann Milwaukee Bucks og fyrrverandi leikmann San Antonio Spurs, Seattle og Denver og hins vegar hinn unga Henk Norel sem valinn var af Minnesota Timberwolves í nýliðavalinu fyrr í sumar. Báðir koma með hollenska landsliðinu sem leikur gegn því íslenska laugardaginn 22. ágúst í íþróttahúsi Smárans í Kópavogi.

Francisco Elson er lykilmaður í hollenska liðinu. Hann reyndist því íslenska erfiður í fyrri leiknum en tölfræðina úr þeim leik má finna hér

Ferill Elson í NBA.

Á youtube er að finna margar skemmtilegar klippur með kappanum.

Where Francisco Elson happens

Þess má geta að Elson varð NBA meistari með San Antonio Spurs.

Henk Norel lék á síðustu leiktíð með Joventud Badalona á Spáni og lék m.a. með ungstirninu Ricky Rubio sem valinn var númer 5 af Minnesota í nýliðavalinu í júní sl.

Hægt er að sjá klippu frá nýliðavalinu þegar Henk Norel var valinn af Minnesota hér en hann var valinn í annarri umferð í sl. nýliðavali.





Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn á leið á lokahóf KKÍ 1988 í gamla Broadway í Mjódd.  Sigurður Ingimundarson, Ragnar Torfason og Guðjón Skúlason
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið