S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
10.8.2009 | 16:54 | Stefán | Þjálfaramál
Námskeið fræðslunefndar haustið 2009
Fræðsluáætlunina má finna hér. Fyrsta námskeiðið sem boðið verður upp á er inngangur að þjálfun. Námskeiðið verður 17. ágúst nk. kl. 18:00 í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á námskeiðinu er m.a. farið yfir það hvað felst í því að vera þjálfari, hvernig mótafyrirkomulag KKÍ er byggt upp, auk annarra atriða sem nauðsynleg eru til að halda áfram inn í fræðslustigann. Þjálfarar þurfa að klára KKÍ 1 og ÍSÍ 1 til að geta hafið nám á KKÍ 2, en boðið verður upp á námskeið í KKÍ 2 haustið 2010. Skráning á inngang að þjálfun fer fram á kki@kki.is fram til hádegis 17. ágúst. Taka skal fram nafn, félag, netfang, símanúmer og hversu lengi viðkomandi hefur þjálfað. Þátttakendur greiða ekkert námskeiðsgjald. |