© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.7.2009 | 16:07 | Stefán
Leikið gegn Ungverjum og Dönum í milliriðli
Trausti Eiríksson átti afmæli úti og fékk þessa veglegu gjöf frá félögunum
Íslensku strákarnir enduðu í fjórða sæti í B-riðli þar sem Finnar sigruðu Slóvaka og tryggðu sér þar með þriðja sætið. Svíar sigruðu Pólverja 80-69 og eru að leika gríðarlega vel.

Það hefði því ekki dugað íslenska liðinu að sigra það sænska í gær þar sem úrslitin í dag voru því óhagstæð. Framundan er nýtt mót gegn hörkuliðum og nú er bara að spýta í lófana.

Framhaldið er komið á hreint hjá liðinu en næsti leikur er gegn Ungverjum á miðvikudag klukkan 12:00 að íslenskum tíma og á fimmtudag gegn Dönum sem eru með innanborðs stigahæsta leikmann mótsins leikstjórnandan Thomas Lærke en hann hefur skoraði 32.4 stig að meðaltali. Kappinn lék ekki með liðinu á norðurlandamótinu í maí.

Íslenska liðið horfði í dag á Dani leika gegn Hvítrússum og Ungverja tapa í hörkuleik fyrir heimamönnum í Bosníu. Umgjörð og aðbúnaður á mótinu er til fyrirmyndar og er mótið mikil og góð reynsla fyrir allan hópinn.

Íslenska liðið á nú frídaga og fara þeir í að skoða Sarajevo og kíkja aðeins í sundlaugagarðinn til að kæla sig niður í hitanum sem er töluverður, en veðrið í dag var 35°C og heiðskírt.

Á morgun mun íslenska liðið leika æfingaleik gegn Kuwait sem staddir eru hér á sama hóteli, en liðið er með mikinn mannskap í æfingaferð. Leikurinn fer fram í íþróttasal hótelsins klukkan 16:00 að íslenskum tíma.

Kveðja frá Sarajevo
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Liðsmenn KFÍ í 7. flokki karla veturinn 2004-05. Hér er liðið á fjölliðamóti á Ásvöllum haustið 2004.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið