S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
2.7.2009 | 17:06 | einar
Úrtökuæfingar fyrir drengi fædda 1995 um aðra helgi
![]() Úrtökuæfingar fyrir U15 framundan
Einar Árni Jóhannsson er þjálfari U15 og mun hafa umsjón með æfingunum en einnig munu fleiri þjálfarar koma að úrtökuæfingunum sem fara fram á Ásvöllum í Hafnarfirði laugardaginn 11. júlí og sunnudaginn 12. júlí . Hópnum verður skipt upp í tvennt og mun hópur eitt æfa 09:00-10:40 og 12:40-14:20 en hópur tvö mun æfa 10:40-12:20 og svo aftur 14:20-16:00 en sömu æfingatímar eru báða dagana. Bréf með hópaskiptingunni mun berast leikmönnum strax eftir helgina í pósti en nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Einari Árna í netfanginu einar.johannsson@gmail.com eða í síma 618-7007. U15 hefur tekið þátt í Copenhagen invitational síðustu tvö ár og 1994 árgangurinn vann það mót einmitt núna í byrjun júní. Mótið er liður í undirbúningi fyrir U16 sem tekur þátt í NM en 1994 árgangur skipar nú U16 fyrir komandi tímabil og verður stækkaður hópur hjá þeim kallaður saman til æfinga síðar í júlí en þeir munu æfa helgina 25. og 26. júlí. |