S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
15.6.2009 | 11:01 | Kristinn
Sumarfjarnám ÍSÍ · Þjálfarastig 1
Um er að ræða fyrsta stig þjálfaramenntunar ÍSÍ almennan hluta sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólum og fá því nemendur sem klára námskeiðið þann áfanga metinn og þar með tvær einingar ef til mats kemur inn í framhaldsskóla. Námið tekur átta vikur og er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Nemendur skila verkefnum vikulega auk lokaverkefnis og taka auk þess nokkur krossapróf. Meðal efnis á námskeiðinu eru stefnur ÍSÍ í þjálfaramenntun og barna- og unglingaíþróttum, kennslufræði þar sem meðal annars er fjallað um þjálfunaráætlanir og tæknikennslu auk kafla um vöðvafræði, uppbyggingu líkamans, íþróttameiðsl, íþróttasálfræði, næringu o.fl. o.fl. Skráning er á namskeid@isi.is og er námskeiðið öllum opið sem lokið hafa grunnskólaprófi. Við skráningu þarf að gefa upp fullt nafn, heimilisfang, kennitölu, netfang og símanúmer. Allar nánari upplýsingar gefur Viðar sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is Á körfuknattleiksþinginu sem fram fór í maí var samþykkt reglugerð sem snýr að fræðslustefnu KKÍ um menntun körfuknattleiksþjálfarai. Sú reglugerð tekur gildi fyrir tímabilið 2011-2012, en þá þurfa þeir sem ætla að þjálfa hjá sínum félögum, að hafa til þess tilskild réttindi sem miðast við á hvaða stigi er verið að þjálfa. Fyrir þá sem ekki hafa lokið 1. stigi ÍSÍ eða hafa fengið metið þjálfunarferil sinn er þetta tilvalið tækifæri til klára þennan grunnhluta ÍSÍ. |